Vakning á Íslandi?
Birkir Már Kristinsson

Eins og ég deildi í síðasta mola tók ég þátt í Reykjavíkurmaraþóni nú í ágúst. Hér kemur önnur reynsla sem ég átti í þessu merkilega andlega hlaupi :)


Það er mjög sjaldgæft að nokkur maður hlaupi framúr mér í hálfmaraþoni eftir fyrstu tvo km. Alla vega var það mjög sjaldgæft. En ég er víst ekki í alveg sama forminu og þegar ég var uppi á mitt besta þannig að þetta gerðist þrisvar sinnum í þessu hlaupi (að vísu hljóp ég seinna aftur fram úr einum þeirra :). Þegar maður er að gera sitt besta og svo kemur einhver og brunar fram úr manni hættir manni til að missa móðinn. Það hefur ekki góð áhrif á baráttugleðina. En ég hef lært ráð við þessu. Í hvert skipti sem einhver hleypur framúr mér, klappa ég fyrir honum þar sem ég horfði í bakið á honum og hvet hann áfram: “Flott hjá þér, taktu þetta!” Síðan held ég bara áfram á mínum hraða. 


Þetta gerbreytir allri reynslunni. Í stað þess að finnast ég ómögulegur að geta ekki haldið í við viðkomandi, finnst mér ég eiga eitthvað í sigri og velgengni hins keppandans með því að hvetja hann, því ég veit hversu uppörvaður ég yrði ef þetta væri gert við mig. Í stað þess að líða verr eftir að viðkomandi hefur hlaupið framúr mér, líður mér betur og einbeitningin sem þarf til að klára mitt hlaup eykst í stað þess að minnka.


Það er bara til einn Kristur og hann er bara með einn líkama. Sami Kristur býr í okkur öllum og það á ekki að skipta okkur máli hvernig hann kýs að gera sig sýnilegan og dýrlegan. Ef ég skora mark í fótbolta með hægri fæti, þá gleðst samt ekki bara hægri fótur: Ég gleðst allur. Vinstri fæti finnst sér ekki vera ógnað af hæfileikum  hægri fótar, heldur lítur svo á að velgengni  hægri fótar sé einnig velgengi þess.


Sleppum takinu. Munum að við eigum ekki kirkjuna, aðeins Kristur er höfuð þess. Beygjum okkur undir hann og blessum og heiðrum hvert annað. Þannig eignumst við hlutdeild í velgengni hvers annars og verðum frjáls til að finna okkur í því hlutskipti sem Höfuðið hefur ætlað okkur.


Ef kirkjan á Íslandi tileinkar sér þetta viðhorf, opnar hún leiðina fyrir Föðurin að gera Son sinn dýrlegan á meðal okkar sem aldrei fyrr. Án þessa viðhorfs verður aldrei allsherjar vakning á Íslandi.

Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is