Birkir Már Kristinsson
Ég hljóp hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu sem er svo sem ekki frásögu færandi þar sem ég hef gert það a.m.k. tíu sinnum áður. Það var að vísu á árunum 1995-2002 og því var liðinn dágóður tími síðan síðast og formið eftir því.
Fyrstu 13 km voru ekkert mál en svo fóru vöðvarnir í hnút og ég þurfti að hafa mikið fyrir því að klára rest og næstu daga á eftir var ég með strengi og gekk eins og gamall kall. Ég náði þó að klára hlaupið og halda sjálfsvirðingunni og var sáttur við tímann miðað við allt og allt.
En það merkilega við þetta hlaup er að Guð var að tala til mín allt hlaupið og ég hef aldrei upplifað eins andlegt hlaup :) Þannig að ef þið viljið vaxa í Guði, farið og hlaupið hálfmaraþon! (Grín). Mig langar til að deila með ykkur einu dæmi.
Þið munið eftir þegar Jesús tók skírn hjá Jóhannesi skírara, himininn opnaðist og Faðirinn sagði: “Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á”. Jæja, ég lenti í svipaðri reynslu. Að vísu notaði Guð aðeins nútímalegri aðferðir. Þannig var í hlaupinu að á nokkrum stöðum voru gríðarlega öflugir útihátalarar sem dúndruðu hvetjandi tónlist. Þegar hlaupið var rúmlega hálfnað kom ég að slíkri stöð og þá hljómaði rödd Pabba míns á himnum af slíkum krafti að allir í kringum mig hljóta að hafa heyrt og öll vera mín fylltist af orðunum:
You´re simply the BEST!!! Better than all the rest, better than anyone, anyone I´ve ever known. You´re simply the BEST!!!
Röddin sem hljómaði var að vísu furðu lík rödd Tina Törners en ég lét ekki blekkjast: ég þekki rödd Pabba míns þegar ég heyri hana og orðin voru eins og kærleiksboltar sem hittu mig beint í kjarna veru minnar og hituðu mig allan. Enda var geðshræringin slík að ég gat ekki annað en hlegið eins og asni þarna á hlaupunum. Ég gerði mér þó strax grein fyrir því að hann var ekki að tala um að ég væri besti hlauparinn á staðnum heldur að ég væri einfaldlega bestur í alheiminum í hans augum og það var auðvitað ennþá stórkostlegra!
Ok, alveg rólegur í hrokanum Birkir! Earth calling Birkir sko! Áttu við að í augum Guðs sért þú betri en allir aðrir?
Guð Faðir á sér uppáhald. Hann heitir Jesús Kristur. Þeir voru saman áður en heimurinn varð til og um alla eilífð eru þeir eitt. Faðirinn elskar hann meir en nokkuð annað. Það vill svo skemmtilega til að þú og ég eigum hlutdeild í Jesú Kristi. Hann býr í okkur. Hann er óaðgreinilegur hluti af okkur og við af honum. Þar að leiðandi höfum við sama aðgang að himneska Pabba okkar og hann og mætum sama viðmóti og hann mætir þegar hann á samfélag við Pabba sinn. Hann upplifir algjöra elsku og algjöra velþóknun Föðurins í sinn garð. Hann veit að Pabba finnst hann bestur í heimi og er svo stoltur af honum. Faðirinn sá til þess að við yrðum hluti af Kristi og því erum við nú öll í sérstöku uppáhaldi hjá Pabba okkar og getum öll upplifað okkur best í heimi í hans augum. Gleðjum hann með því að sjá eins og hann sér og leyfa okkur að vera uppáhaldið hans!