Birkir Már Kristinsson

Siggi vaknaði einn daginn og ætlaði að byrja daginn með því að eiga samfélag við Guð. Samtalið sem þeir áttu var nokkurn veginn svona:
Siggi:
Faðir, ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja...mér finnst eins og ég geti ekki horft beint í augun á þér, ef þú skilur hvað ég meina. Þetta er eins og eftir riflildi á milli mín og konunnar, þá finnst okkur óþægilegt að umgangast þangað til við erum búin að gera það upp. Þannig líður mér svolítið gagnvart þér...ekki það að við höfum verið að rífast og ég er ekki meðvitaður um neitt sérstakt sem ég þarf að biðja þig fyrirgefningar á...en þú ert bara svo heilagur og ég er svo meðvitaður um hvað ég er ófullkominn frammi fyrir þér.
Faðirinn:
Nú, ertu ófullkominn?
Siggi:
Já, ég þarf nú ekki að segja þér það!
Faðirinn:
Tja, ég hef satt að segja ekki orðið var við það.
Siggi:
Hvað meinar þú? Þú hlýtur að sjá mig á svipaðan hátt og ég sé mig. Mér líður eins og ég sé virkilega ófullkominn, alla vega frammi fyrir þér sem les mig sem opna bók!
Faðirinn:
Nei, ég sé þig nefnilega alls ekki eins og þú sérð þig. Ég sé þig einmitt sem fullkominn og algjörlega heilagan af því að ég sé þig í Syni mínum.
Leyfðu mér að gefa þér ráð, elskaði sonur minn. Þegar þú kemur frammi fyrir auglit mitt, skaltu ekki spyrja þig hvernig ég sé þig útfrá hvernig þér líður með sjálfan þig eða útfrá hversu vel eða illa þú hefur staðið þig undanfarið. Spyrðu sjálfan þig hvernig ég sé Son minn, hvers konar tillfinningar ég ber til hans á því augnabliki sem þú leitar mín, hversu ánægður og sáttur ég er við hann.
Nákvæmlega þannig líður mér gagnvart þér á því augnabliki sem þú leitar mín, burtséð frá því hvort þú sért nýlega búinn að gera einhvern skandala af þér eða staðið þig vel. Komndu til mín og finndu að velþóknunin sem hvílir yfir Syni mínum, hvílir yfir þér. Þá munt þú koma upplitsdjarfur með opið hjarta og þá get ég fengið það sem ég skapaði þig fyrir og Sonur minn borgaði dýru verði fyrir: ástarsamfélag við mig. Aðeins í þessu ástarsamfélagi get ég verkað í þér og umbreytt þér. Ég er þinn Pabbi að eilífu.
(Ath. Siggi er ímynduð persóna)