Mjólk versus kjöt á andlega vísu.
Nýr moli frá Árný
Ég hef ákaflega gaman að lesa biblíuna mína og er í skýjunum þegar ég dett niður á ritningavers sem tala inn í anda minn. Það er svo góð næring.

Ég er að lesa Hebreabréfið þessa dagana og hnaut yfir vers sem ég varð að staldra ögn lengur við. Kafli 5.12-14: "Þó að þið tímans vegna ættuð að vera kennarar, þá hafið þið þess enn á ný þörf, að einhver kenni ykkur undirstöðuatriði Guðs orða. Svo er komið fyrir ykkur, að þið hafið þörf á mjólk en ekki fastri fæðu. En hver sem á mjólk nærist er barn og skilur ekki boðskap réttlætisins. Fasta fæðan er fyrir fullorðna, fyrir þá sem jafnt og þétt hafa tamið skilningarvitin til að greina gott frá illu.

Ég skil þetta þannig, að við skiljum ekki boðskap réttlætisins og hvernig á að greina gott frá illu ef við erum enn að nærast á mjólk eins og greinilega Hebrearnir þarna voru dottnir út í aftur. Þeir höfu gerst heyrnasljóir (v. 11).

Við getum svo sannarlega gerst heyrnasljó líka, sérstaklega ef við notum ekki tímann til að heyra eða lesa Guðs orð. Einnig ef við förum í kirkju og heyrum boðskap sem er alltaf eins, kannski af því að prestarnir eru orðnir heyrnasljóir sjálfir! Og gerum ekkert í því að uppbyggja okkur á annan hátt.

Ég er ekki hér að kasta steinum, ég hef verið á þeim stað oft að hafa gerst heyrnasljó og þá fylgir það skammrifi að við erum að nærast á mjólkinni einni saman og missum af safaríkum steikum. Ef við höfum snúið okkur aftur að mjólkinni, eða höfum aldrei smakkað steikurnar, þá samkvæmt þessum versum höfum við ekki tamið skilningarvitin til að greina gott frá illu.

Það er nefnilega málið, að ef við lesum Guðs orð, þyrstir og hungrar í það, förum við ávallt dýpra, því það er óendanlegt dýpi í orðinu, þá fer andi okkar að nema hlutina öðruvísi og við förum að breyta öðruvísi. Við förum að sjá hið ranga sem rangt og hið góða sem gott, og lifum samkvæmt því, Guði til dýrðar.

Ég vil meira af andlegu kjöti þótt líkmleg grænmetisæta sé!

Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is