Andlega lífið okkar á ekki að snúast um að streða í eigin mætti til að sjá hluti gerast. Líf sem lifað er utan frá og inn verður alltaf streð og fólk er ófullnægt.
Kristur lifir innra með okkur og þaðan kemur líf hans, innan frá og út.
Við þurfum að lifa í nýja sáttmálanum sem Jesús gaf okkur, ekki í þeim gamla sem Móse fékk á steintöflum.
Við mennirnir erum svo vön því að gera gera gera. Gera allt sem við getum til að andlega lífið gangi upp og stundum verðum svo uppgefin að okkur langar hreinlega að gefast upp.
II Kor.3:6 "sem hefur gert okkur hæf til að vera þjónar nýs sáttmála, ekki bókstafs (lögmálið), heldur anda. Því að bókstafurinn deyðir en andinn lífgar".
Róm 3:20 "Enginn lifandi maður réttlætist fyrir honum af lögmálsverkum. En fyrir lögmál kemur þekking syndar".
Róm 6:14 " Synd skal ekki drottna yfir ykkur, því ekki eruð þið undir lögmáli, heldur undir náð".
Róm 8: 2 "Lögmál lífsins anda hefur í Kristi frelsað þig frá lögmáli syndarinnar og dauða."
Róm 10: 4 "En Kristur er endalok lögmálsins, svo að nú réttlætist sérhver sá sem trúir.".
Þegar við lifum undir lögmáli, heyjum við stríð við syndina, en þegar við lifum undir náð Guðs, lifum við í sigri hans.
Páll segir einnig í Gal 2: 21 "Ég ónýti ekki náð Guðs. Ef réttlæting fæst fyrir lögmál, þá hefur Kristur dáið til einskis. Við lifum fyrir trú núna, ekki lögmál.
Gal 3: 23 "Áður en trúin kom vorum við í gæslu lögmálsins, innilokaðir, þangað til trúin sem í vændum var, opinberaðist. Þannig hefur lögmálið orðið tyftari okkar þangað til Kristur kom, til þess að við réttlættumst af trú. En, nú eftir að trúin er komin, erum við ekki lengur undir tyftara"!
ER ÞETTA FAGNAÐARERINDI EÐA HVAÐ?!!
Við þurfum hreinlega opinberum á því að Guð er búinn að gera allt sem þarf.
Og að leyfa honum að vera sá sem hann er, í okkur. Lifa innan frá og út.
Við erum ný sköpun, allt er orðið nýtt fyrir náð og verk Jesú á krossinum. Hann fullkomnaði verkið og lifir í okkur til að það megi streyma fram í krafti og eintómu lífi!
Orð Guðs er magnað, en það er oft misskilið og oft ekki lesið í réttu samhengi. Of margir lifa blönduðu lífi, með annan fótinn í lögmálinu og hinn í náðinni. Það er mix sem fer ekki saman og truflar vöxt og flæði. Verum ekki þannig hálfvolg. Tökum við hinu stórkostlega fagnaðarerindi sem segir okkur svo berlega í orði Guðs að við erum frjáls frá gömlum sáttmála og erum innsigluð í nýjum sáttmála sem unnin var af Jesú Kristi á krossinum.
Op. Jóh. 3:15 segir: "Ég þekki verkin þín, að þú ert hvorki kaldur eða heitur. En af því að þú ert hálfvolgur og hvorki heitur né kaldur, mun ég skyrpa þér út af munni mínum". Ég skildi aldrei þetta vers. Það dró mig frekar niður en að uppörva mig. Þangað til mér fannst í mínum innra manni að hálfvelgjan væri blanda af lögmáli og náð. Guð vill ekki þá blöndu því hún gerir ekkert nema rugla mann í ríminu. Verum annað hvort undir lögmálinu og höldum það, því það er gott í sínu eðli, eða lifum undir náð Guðs, þeim sáttmála sem Jesús vill leiða okkur inn í, til sigurs yfir synd!
Allt breyttist við krossinn. Það er vel hægt að tala um lífið fyrir og eftir krossinn. Og það er mikill munur þar á. Gal 5:1 "Til frelsis frelsaði Kristur okkur, látum ekki aftur leggja á okkur ánauðarok".
Lifum ekki lengur undir lögmáli sem enginn nema Jesús gat haldið og uppfyllt. Lifum sem ný sköpun í nýjum sáttmála.
Og þegar allt er orðið nýtt, hið gamla horfið, þá þýðir það að við lifum ekki framar, heldur lifir Kristur í okkur og það er frá honum sem lækir lifandi vatns flæða.
Við skulum því setja augu okkar á hann í einu og í öllu, fortíðin er farin þegar hann er kominn í líf okkar. Þá þurfum við ekki lengur að streða við að vera heil. Við erum það vegna verks Jesú. Dauði hans á krossinum setti okkur frjáls frá dauða, synd og sjúkdómum. Við þurfum bara að ná okkur í opinberun á þessu öllu!
Guð hefur sætt allan heiminn við sig. 2 Kor. 5:19 Hvar sem þú ert, hver sem þú ert, þá er hann sáttur við þig. Þú þarft aðeins að taka á móti Honum. Og þegar þú gerir það, áttu allt það líf sem Kristur á og getur framgengið í því með hjálp Heilags Anda.
Það er ekkert sem er utan frá og inn í Kristi, því hann býr INNARA með þeim sem taka við honum.
Við þurfum ekki að kalla á hann til að hann komi, hann er í okkur, við þurfum ekki að biðja hann að gera meira til þess að lifa frjáls, hann er búinn að gera allt.
Sumir spyrja: “nú ef maður lifir undir stöðugri náð og Guð er búinn að fyrirgefa allar syndir frá a-ö, má þá ekki bara gera allt sem maður vill”. Ég spyr þig: “viltu það”?
Biblían segir að allt sé leyfilegt en ekki sé allt gagnlegt. Hinn nýji innri maður segir okkur hvað er rétt og hvað rangt. Og ef við höfum opinberun um verk Guðs í okkur og hvað hann gerði til að frelsa okkur, þá langar okkur ekki til að gera hið ógagnlega því það hindrar, skemmir og meiðir. Það eru alltaf afleiðingar af því ranga sem við gerum þótt það sé þegar fyrirgefið.
GAL 5: 24 "Þeir sem tilheyra Kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum".
VIÐ ERUM RÉTTLÆTI GUÐS Í KRISTI JESÚ!
Það er það sem Heilagur Andi var sendur til að minna okkur stöðuglega á þegar óvinurinn reynir að ásaka okkur og blekkja.
Jóh. 16: 8 "Þegar Heilagur Andi kemur mun hann sanna heiminum hvað er:
1. synd
2. réttlæti
3. dómur.
syndin er: að þeir trúðu ekki á mig (heilagur andi mun sanna þetta er fyrir heiminum)
réttlætið: að ég fer til föðurins og þið sjáið mig ekki framar (heilagur andi mun minna hina kristnu á réttlætið í Kristi)
dómurinn: að höfðingi þessa heims er dæmdur (óvininurinn)
Þú og ég megum ganga inn í frið hans, lækningu, líf og út á orðið hans sem gefur allt sem við þörfnumst. En það gerist allt innra með okkur. Ekki utan frá og inn.
Við þurfum opinberun um verk hans, um náð hans, um lífið sem hann gaf, um fagnaðarerindið, um frelsið, um lækningu og allt annað sem býr innra með okkur, börnunum hans.
Og opinberun gerist ekki í huganum, heldur í andanum. Aðeins þar lifnar hún og verður að sannfæringu sem ekki er auðið að sjá.
Ég trúi því að vakningin á Íslandi gerist þegar við skiljum fagnaðarerindið innan frá og út!
Þegar við erum ekki bara ný sköpun í honum, heldur lifum sem ný sköpun