DNA eru ekki hefðbundnir samfélagshópar eins og flestir þekkja þá. Áhersla er lögð á að búa til andrúmsloft þar sem fólk getur verið það sjálf og þorað að gera mistök. Sem fjölskylda Guðs munum við borða saman og gera skemmtilega hluti saman til að stuðla að þessu andrúmslofti. Hóparnir fá síðan verkefni sem miðast að því að auðvelda okkur að:
Til að byrja með hópurinn fá allt í hendurnar og þarf bara að njóta og fara eftir leiðbeiningum en markmiðið er að smám saman fari hópurinn að virka sem lifandi heild þar sem allir sýna frumkvæði og gefa af sér auk þess að þiggja.
Sýnin á bakvið DNA hópa
Ef við trúum á Jesú Krist er Andi Guðs eitt með anda okkar og því höfum við DNA hins eilífa Guðs innra með okkur (2.Pét. 1: 4). Þegar við komum saman fæðir Guð því fram eitthvað dýrlegt sem kallast kirkjan. Kirkjan er eðlilegt umhverfi barna Guðs, nýlenda himnaríkis á jörðu, framlenging himnaríkis á jörðu. Kirkjan er konunglegt prestafélag þar sem hver og einn heyrir frá Guði og allir eru jafnir.
DNA hópum er ætlað að hjálpa til við að gera að veruleika þá sýn að kirkjan er:
Fjölskylda Guðs
Við erum fjölskyldumeðlimir Guðs, alvöru synir og dætur Föðurins og systkini Jesú Krists því DNA hans býr í okkur. Við erum að læra að leyfa skilyrðislausa kærleika hans að flæða hver til annars og heimurinn mun þekkja að við erum lærisveinar hans á þessum kærleika. Við gerum það saman sem fjölskyldur gera: borðum saman, byggjum hver annað upp, veitum hvoru öðru aðhald, förum í ferðalög saman, gerum eitthvað skemmtilegt saman, finnum til hver með öðrum í erfiðleikum og gleðjumst hver með öðrum þegar vel gengur. Þessi fjölskyldubönd vara að eilífu.
Líkami Krists
Við erum limir á líkama Krists. Hann er höfuðið og líf hans innra með okkur gefur frumkvæði og vald og þannig er hann einn leiðtoginn. Forysta, frumkvæði og andleg næring getur því komið frá hvaða barni Guðs sem er. Kirkjan er það umhverfi sem börn Guðs læra að framganga í honum og deila honum hver með öðru þar sem Líf flæðir frá einum lim til annars. Þetta umhverfi ýtir undir að Kristur myndist innra með hverjum og einum í vaxandi mæli. Kristur hefur of margar dásamlegar hliðar til að einn limur geti tjáð hann svo að vel sé: allir limir líkama hans þurfa að vera virkir til að Kristur verði sýnilegur.
Musteri Guðs
Kirkjan er musteri byggt úr lifandi steinum þar sem Kristur er hornsteininn. Þetta musteri er langþráð heimili Föðurins. Steinarnir þurfa að núast saman þangað til þeir passa saman: í kirkjunni veitum við hvoru öðru aðhald og í kirkjunni koma gallar okkar upp á yfirborðið og við neyðumst til að takast á við þá og bera kross okkar. Í kirkjunni erum við þannig höndluð af Kristi og lærum að höndla hann.
Brúður Krists
Kirkjan er brúður Krist, stúlkan sem fær hann til að kikna í hnjánum, stúlkan sem hann gerði heilaga og lýtalausa, saklausa og geislandi af lífi Guðs og dýrð Guðs. Stúlkan sem hann þráir með afbrýði og gaf líf sitt fyrir. Þessi stúlka elskar hann með sömu guðdómlegu ást og hann elskar hana með og gefur honum líf sitt með gleði. Hann hefur gert hana hæfa til þess. Þú og ég erum hluti af þessari stúlku.