Hamingjureglurnar 7
Árný Jóhanns
Hamingjureglurnar sjö
1. Lifum lífinu án biturleika og haturs - Matt 5: 44-48
Við erum sjálfum okkur verst ef við leyfum biturleika og illindum að ná tökum á okkur.  Hugarfar okkar er svo fljótt að mengast af röngum hugsunum og við gerum oft úlfalda úr mýflugu. Við eigum það til að ímynda okkur hlutina verri heldur en þeir eru.  Fólk er sjálfu sér verst að ala á biturleika í hjarta sínu og það býr til veggi og múra gagnvart þeim sem biturleikinn er gegn.

2. Lifum áhyggjulausu lífi
Sumt fólk hefur áhyggjur af öllu því sem það gerði eða gerði ekki í fortíðinni, af öllu því sem þarf að gera í dag að ég tali nú ekki um framtíðina. Þetta er orðinn menningarsjúkdómur og veldur þunglyndi hjá  mörgum. Hamingja er oftast fjarri þeim sem líður svona. Jesús nefnir áhyggjur 6 sinnum í Matt 6:25-34 sem eru þó aðeins 9 vers. Kíkið endilega á það.
Ef við höfum tekið við Jesú sem leiðtoga lífs okkar, þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur, Jesús blekkir okkur ekki með orðum sínum, hann gefur okkur visku inn í líf okkar, hann meinar allt sem hann segir og ef við förum eftir orðum hans, mun okkur farnast vel. Áreitið í kringum okkur er þvílíkt að við verðum að gera í því passa okkur. Maður skilur vel að fólk sem ekki hefur Guð í lífi sínu hafi áhyggjur. Fjárhagur, húsnæði, sjúkdómar, atvinna, börnin, hjónabandið osf. Í stöðugum áhyggjum er enga gleði eða hamingju að finna og við höfum líka nett áhrif á umhverfi okkar. Við getum ekki breytt fortíðinni, enda vill Guð samverka hana til góðs. Það er ný náð fyrir daginn í dag, það er mjög mikilvægt að gera sitt besta og treysta Guði fyrir rest. Framtíðin er til heilla en ekki til óhamingju fyrir börn Guðs. Jes 29:11.
Áhyggjur valda því að við sjáum ekki svörin né leiðina út úr þeim, fyrir utan að þær laga ekki neitt. Tökum okkur alltaf tíma til að ræða málin við Guð og finna hans leiðir.

3. Lifum lífinu á einfaldan hátt - verum jákvæð
Maður er alltaf að lesa greinar bæði í erlendum og innlendum blöðum um að jákvæðni sé góð fyrir líkamann og bæti heilsuna. Það er ekkert nýtt fyrir Guði, hann talar um þetta mjög víða í orði sínu. Lestu Orðskv 3:1-6. Hvað gerist þegar við varðveitum boðorð Guðs og kenningu hans í einfeldni þeirra? Langir lífdagar, velgengni, kærleikur og trúfesti munu elta okkur, ávinnum okkur hylli, bæði í augum Guðs og manna. Ef við treystum Drottni af öllu hjarta verður lífið svo miklu einfaldara, og ganga okkur slétt. Hvernig getum við einfaldað hlutina? Vera ekki í stöðugri samkeppni við náungann eða vinina. Vera jákvæð en ekki neikvæð. Kona sem missti manninn sinn eftir 60 ára hjónaband, fór á elliheimili af þeim sökum. Hún var komin yfir áttrætt, næstum orðin blind. Samt var hún alltaf snyrtilega klædd og vel tilhöfð, bar höfuð sitt hátt og brosti mikið. Hún hafði beðið marga klukkutíma í biðsal elliheimilisins þegar henni var loksins boðið að flytja inn í herbergið sitt.  Hún fikraði sig áfram með göngugrindinni og stúlkan sem fór með henni reyndi að lýsa herberginu fyrir henni. Ó, mér finnst það yndislegt sagði gamla konan með svo mikilli eftirvæntingu. En þú hefur ekki séð herbergið það ennþá sagði stúlkan, bíddu nú aðeins með að lýsa hrifningu þinni. Það hefur ekkert með það að gera svaraði gamla konan. Hamingja mín felst ekki í húsgögnum eða gardínum, heldur hvernig ég skipulegg hugsanir mínar. Ég er búin að ákveða að mér líki herbergið og á hverjum degi mun ég taka þá ákvörðun. Ég hef val, ég get eytt deginum í rúminu og hugsað um hversu lélegur líkaminn er orðinn í dag, eða ég get farið fram úr rúminu og þakkað fyrir að ég get það. Hver dagur er gjöf og á meðan ég lifi, mun ég einblína á það og allar góðu minningarnar sem ég hef geymt fyrir þennan hluta lífs míns. Ellin er eins og bankareikningur, þú tekur út það sem þú hefur lagt inn í lífinu. Svo þakkaði hún starfsfólkinu fyrir þeirra innlögn í minningarbankann. Ég er nefnilega ennþá að leggja inn sagði hún.

4. Gefum af okkur
Það er hægt að gefa þótt það séu ekki fjármunir eða efnislegir hlutir. Gefa bros, gefa tíma, vera betri vinur, hjálpa foreldum og systkinum, ömmu og afa, nágrönnum okkar osf. Jesús gaf og gaf, hann gaf allt. Guð gaf son sinn í dauðann fyrir okkur. Hann hefur gefið okkur Heilagan Anda sem er með okkur í dag. Hann segir meira að segja að fyrst hann hafi gefið okkur son sinn, skyldi hann þá ekki gefa okkur allt með honum?
Eigingirni er afskaplega ráðandi í heiminum í dag. Ég, um mig, frá mér til mín, en Guðs börn eiga að skína sem ljós með því að gefa það sem Guð hefur gefið okkur í Jesú. Friðinn, gleðina og alla ávexti andans. Eitt er víst að því meira sem við þiggjum af pabba okkar á himnum, því meira höfum við að gefa. Að elska náungann eins og okkur sjálf hlýtur að fela í sér að hugsa vel um hann, velja það besta fyrir hann og hjálpa honum þótt það kosti okkur eitthvað. Betra er að gefa en þiggja segir Biblían. Lúk. 6:38. Við getum stráð brosum og góðum verkum sem munu gefa ávöxt.

5. Gerum ekki of miklar kröfur
Gerum ekki alltof miklar kröfur til okkar sjálfra og annarra. Við opnum okkur svo auðveldlega fyrir vonbrigðum ef við erum með kröfur eða væntingar innra með okkur sem svo ekki rætast. 1 Tím 6:6-10  talar ma. um að vera nægjusöm. Ég þekki konu sem á bókstaflega allt og helst tvennt af öllu, ég þekki aðra sem á það sem nauðsynlegt er og lítið fram yfir það. Ég hef stundum borið þær saman að gamni og ég er ekki frá því að sú sem á minna sé hamingjusamari, hún gleðst yfir öllu því sem gert er fyrir hana og henni er gefið enda auðvelt að finna eitthvað sem blessar hana. Það er erfiðara að gefa hinni, því hún á allt og það er erfitt að finna eitthvað til að gleðja hana með. Eftirvænting og kröfur þessara tveggja kvenna eur mjög ólíkar.

6. Tölum varlega - Sálmur 34:13
Það er ekki sama hvað við segjum og hvernig við segjum það. Tungan er svo fljót til. Það er eins og einn málsháttur segir, það getur tekið fjölda ára að eignast vin, en bara eitt orð að missa hann. Biblían talar líka um að setja vörð um munn okkar. 1 Pét 3:10-12. Minnir okkur á Jesú, þótt aðrir töluðu gegn honum, lugu upp á hann, hreyttu í hann ókvæðisorðum, þá þagði hann, og elskaði. Hann talaði alltaf út frá kærleika. Faðir fyrirgefðu þeim því þau vita ekki hvað þau ger. Þetta er hugarfar sem við þurfum að temja okkur. Í Orðskviðunum segir að mjúklegt andsvar stöðvi bræði. Það er ekki alltaf auðvelt, en gefur af sér góðan ávöxt þótt síðar verði.Tökum okkur tíma til að hugsa um það sem við segum og nota varir okkar til að blessa. Passa okkur á því að láta ekki allt fjúka. Ég hef oft sagt eitthvað sem ég svo engist yfir að hafa sagt, fæ ekki ró í beinin fyrr en ég er búin að gera það upp. Og stundum er horft á mig eins og naut á nývirki. En ef við þurfum að hreinsa samvisku okkar þá skulum við ekki geyma það og viðið skulum alls ekki breiða yfir mistök okkar, þá herðist samviskan Tölum saman.

7. Tilreiknum ekki illt.
Ég á mann sem hreinlega virðist ekki geta eða kunna að tilreikna fólki neitt nema gott. Hann tekur alltaf upp hanskann fyrir fólk. Sér alltaf það besta í hverjum og einum. Hann er lifandi vitnisburður um 1 Kor. 13:7. Enda er hann manneskja sem fólki finnst gott að vera nálægt. Ég hef lært margt af honum. Reynum að sjá góðu hliðarnar á fólki og tökum aldrei þátt í illu umtali, Guð heyrir allt sem við segjum, þótt viðkomandi sé ekki til staðar. Felum ekki umtal okkar í afsökunum eins og að það þurfi nú að biðja fyrir manneskjunni. Það hryggir Guð og gefur því fólki sem þú talar við, þína mynd af viðkomandi. Ég hef oft upplifað að hafa heyrt umtal um einhvern og það reynist einungis byggt á biturleika eða öfund frá einhverjum öðrum. Reynum frekar að einblína á það, að fólk á kannski um sárt að binda, hefur lent í ömurlegum hlutum, t.d. brotinni barnæsku, ofbeldi, einelti og öðrum niðurbrjótandi hlutum og þarf kærleika en ekki baktal. Tökum okkur Sálm 1 til fyrirmyndar.

Guð blessi þig kæri lesandi..:)




Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is