Guð er alltaf kærleikur
Birkir Már Kristinsson
Lífið er stundum ósanngjarnt og stundum hreinlega grimmt. Ekkert illt kemur þó frá Guði. Hann veldur aldrei neinu slæmu sem gerist í lífum okkar. Sem almáttugur Guð, “leyfir” hann þó slæmum hlutum að gerast, þ.e. hann kemur ekki alltaf í veg fyrir þá þrátt fyrir að slíkt sé ekki vilji hans.

Hann, sem er kærleikur, mat það svo að það væri þess virði að gefa mönnum frjálsan vilja þrátt fyrir að það þýddi að hans góði, fagri og fullkomni vilji næði ekki alltaf fram að ganga. Öðruvísi gætum við aldrei vitað hvað það er að elska og vera elskuð. Jafnvel ákvörðun Guðs að leyfa frjálsan vilja, og þar með möguleika á slæmum hlutum, var því knúinn af kærleika í okkar garð. Þeir sem kjósa Drottinn munu þó að lokum verða hluti af veröld þar sem kærleikur, góðleiki og líf Guðs gegnumsýrir allt og alla.

En á meðan við lifum í þessum heimi geta slæmir hlutir gerst og lífið reynst ósanngjarnt. Ef við skilgreinum Guð útfrá kringumstæðum okkar og útfrá því sem hann hefur ekki gefið, munum við ekki trúa að allt sem Guð gerir sé knúið af kærleika í okkar garð. Við munum fyrr eða seinna komast að þeirri niðurstöðu að hann sé ekki algjörlega góður við okkur. Þá getum við ekki treyst honum algjörlega fyrir okkur sjálfum. Upplifun okkar mun að einhverju leyti vera að hann hafi hafnað okkur, yfirgefið okkur, svikið okkur. Við flýjum hann í stað þess að hlaupa í opinn faðm hans, kjósum að stýra lífum okkar sjálf til að vernda okkur í stað þess að treysta honum fyrir lífum okkar.

En raunveruleikinn er sá að við höfum hafnað Guði. Með því að trúa lygi um Guð lokum við á einlæg samskipti við hann og þar með höfnum við náð hans, blessunum og kærleikssamfélagi. Við ættum að skilgreina Guð útfrá því hver hann er og hvað hann hefur gefið, ekki útfrá kringumstæðum sem við lendum í.

Guð er alltaf góður og hann er alltaf kærleikur. Við getum kosið að dvelja í kærleika hans og velvild. Í Kristi hefur hann gefið okkur kraft og rétt til að kjósa þetta þrátt fyrir okkur sjálf. Okkur er ætlað að ganga inn í sturtu náðar hans og njóta þess sem kærleiksríkur Faðirinn vill gefa okkur. Spurningin er: trúum við á Kærleikann eða trúum við á annan guð?








Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is