Gleðilegt NÝTT ár
Birkir Már Kristinsson

Nýtt ár, ný tækifæri, nýjar ástæður til þess að hlæja og gráta. Nýjar kringumstæður og óvæntar uppákomur bíða okkar. En jafnvel mikilvægari spurning en hvað bíður okkar er hvernig við bregðumst við því sem mætir okkur á komandi ári.


Nýtt er orð sem lýsir Guði. Hann er stöðugt nýr. Jesús er nýja vínið. Náð hans er ný á hverjum degi. Guð gerir alltaf nýja hluti. Ekki það að hann sé einhver bóla sem er hér í dag en sprungin á morgun. Hann hefur alltaf verið til og mun alltaf vera til. En samt er hann alltaf nýr. 


Líf er stöðugt nýtt. Það breytist stöðugt en lýtur samt ákveðnu munstri, ákveðnu DNA. Það sem er lifandi endurnýjar sig stöðugt í krafti lífsins. Líf sigrar stöðugt dauðann. Líf er stöðugt kraftaverk. Við getum útskýrt hvað líf gerir en ekki hvað það er og af hverju það er. Enginn veit heldur af hverju líkaminn fer að hrörna og deyja. Það er engin rökrétt ástæða fyrir því að líkaminn ætti ekki að halda áfram að endurnýja sig endalaust. Fyrir trú vitum við að Guð er uppspretta lífs en að syndin hefur eitrað heiminn og afleiðing hennar er dauði. En Guð er ósnortinn af syndinni, hann er stöðugt nýr en við hrörnum og deyjum. 


Með því að innbyrða nýja vínið, Jesú Krist, verður hans raunveruleiki okkar raunveruleiki. Hann er upprisan og lífið og því munum við lifa þótt við deyjum. Hann hefur kraft til að bregðast við kringumstæðum okkar á hærra plani en okkur er mögulegt. Hans Líf sigrar alltaf dauðann.


Við getum gengið óbreytt inn í nýtt ár. Við getum haldið áfram að bregðast við sömu vandarmálum okkar með sama viðmótinu sem endar í sama vansigrinum. Við getum líka tekið endurnýjum hugafarsins og valið Krist. Sem ný sköpun í honum kjósum við að trúa og ganga út frá því að hið gamla er orðið að engu og nýtt er orðið til. Fyrir líf Krists innra með okkur getum við brugðist öðruvísi við, brotist út úr gömlum hegðunarmynstrum og færst nær honum sem elskar okkar um leið og hann fær að eignast meira í okkur. 


Drottinn. Ég gef þér árið 2009 og allt sem það ber í skauti sér. Ég treysti því að þú sért stærri en allt sem mun mæta mér og að þú hafir allt í hendi þér. Ég trúi að þú getir notað bæði erfiðar og gleðilegar kringumstæður til að gera mig hæfari til að vera í þér. Ég gef þér sjálfan mig og býð þér, sem í mér býrð, að bregðast við öllum þeim kringumstæðum, ákvörðunum og freistingum sem ég mun standa fram fyrir á árinu. Megi 2009 vera ár í lífi mínu sem gleður þig. Gleðilegt nýtt ár, Pabbi.

Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is