Drögum ekki fortíðina inn í framtíðina
Árný Jóhanns
Mistök, vonbrigði, sársauki og ör frá fortíðinni vilja oft ekki hverfa svo glatt. Flest okkar upplifa þetta á einn eða annan hátt, en færri ná að yfirstíga það. Oft höltrum við í gegnum lífið og vonumst til þess að sársaukinn og vonbrigðin hverfi með tímanum. En það gerist ekki alltaf þannig og í mörgum tilfellum versnar ástandið.

Málið er, að í stað þess að skilja fortíðina eftir með öllu því sem í henni býr, þá leyfum við okkur að dvelja þar áfram í orsökum og afleiðingum, höldum henni lifandi. Við einblínum á atburði úr fortíðinni og frjósum mörg tilfinningalega. Oft verða þessi þyngsli óbærileg.

Ef þú finnur þig í þessari stöðu, hugleiddu hvort þú leyfir fortíðinni að móta þig meira en loforðum Guðs um framtíðina.

Vantrúin horfir til baka á fortíðina og segir: “þetta breytist aldrei”. Trúin horfir fram á við og segir: “ég get gengið í sigri vegna loforða Guðs.

Við þurfum að ná þeim stað að geta yfirgefið fortíðina að fullu, hún er ekki hluti af lífinu lengur, hún er liðin og má ekki skarast inn í framtíðina. Við þurfum að segja skilið við allt það vonda sem gerðist, því við getum hvort eð er ekki breytt því, og leyfa öllu því að gerast sem Guð hefur áætlað. Framtíð okkar er til heilla í honum. (Jer 29:11) og hann þráir að fá að leiða okkur inn í hana án byrða og þyngsla frá liðnum tíma.

Jesús kom til að fyrirgefa, leysa og lækna, hann vill að við gleymum fortíðinni sem hann kom m.a. til að leysa okkur frá, að við horfum fram á við, á sigurinn í honum. Losum okkur við allar byrðarnar og umföðmum frelsi framtíðarinnar, sem enn er óskrifað blað. Flekkum það ekki út með svertuslettum frá liðinni tíð.

Náð Guðs er ný á hverjum morgni og hver morgunn er framtíð okkar. Við höfum ákvörðunarvaldið til að ákveða hvað við gerum. Lifa frjáls eða undir byrðum. T.d er fyrirgefning lausn en biturleiki er dragbítur. Oft er það einmitt biturleiki, skortur á fyrirgefningu og að gleyma því liðna sem hrjáir okkur. Fyrirgefning er frelsi! Ef við fyrirgefum ekki, erum við að láta annað fólk ákvarða framtíð okkar.

Setjum fókusinn á orð Guðs, hvað það segir. Það talar aldrei um að við eigum að dröslast með fortíðina á bakinu, heldur eigum við varpa henni við fætur frelsara okkar og skilja hana þar eftir, skunda upplitsdjörf og bein í baki að vonarríku framtíðinni sem pabbi okkar á himnum hefur hannað fyrir okkur af miklum kærleika og umhyggju.

Við getum þetta, því Jesús hefur gert okkur það mögulegt. Allt breyttist við kross Krists. Fortíðin er búin, farin. Framundan er lífið í Kristi, fullt af fyrirheitum og loforðum um blessun og vernd. Við þurfum aðeins að meðtaka gjöf hans.

Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrka(n) gerir.
(Fil 4:13)



Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is