Andinn veitir líf
Halldór Lárusson

“Ef Kristur er í yður…. þá veitir Andinn þér líf” - Róm. 8:10

Að meðtaka og lifa í því sem ekki sést er ekki auðvelt. Flestir Kristnir eiga auðveldara með að meðtaka kross Krists heldur en Anda Krists. Föstudagurinn langi er einhvern veginn rökréttari en Hvítasunnudagurinn. Kristur sem staðgengill okkar. Jesús tók okkar stað. Frelsarinn greiðir fyrir synd okkar. Allt þetta er óumræðanlega stórfenglegt, en samt er hægt að sjá þetta fyrir sér og umfaðma. Við þekkjum þessi hugtök, staðgengill, syndaaflausn, hjálp og lausn. En um leið og við ræðum um Heilagan Anda og verk Hans í okkur og á meðal okkar, þá sogumst við inn í yfirnáttúrulegan heim, ósýnilegan í flestum tilfellum og algjörlega framandi. Snarlega kikna hinir hraustustu Kristnir í hnjánum, verða hljóðir og afar varkárir. Við óttumst það sem við getum ekki séð og útskýrt og það sem við sjáum af hinu yfirnáttúrulega drögum við stórlega í efa að sé frá Guði. Við höfum ekki séð það áður, könnumst ekki við það. Það sem Jesús gerði í Galíleu er það sem Heilagur Andi gerir í okkur. Jesús dvaldi meðal mannanna og kenndi, huggaði, sannfærði, uppörvaði, læknaði og leysti. Hann gerði þetta á margvíslegan hátt og viðbrögð mannanna voru líka margvísleg, þó jafnan virtist leysast úr læðingi mikil gleði og fögnuður. Fólk sýndi gjarnan mjög tilfinningarík viðbrögð og þannig er Það líka við verk Heilags Anda. Óttumst ekki það sem við sjáum ekki eða skiljum, sem frá Heilögum Anda kemur, Hann vill aðeins það besta fyrir þig. Hann opnar fyrir þér líf himinsins hér á jörð. Svo á jörðu sem á himni.
Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is