dag hvern upplifum við með okkar ytri manni hvernig er að vera af þessum heimi..þar er margt gott í gangi en einnig margt slæmt..sumir eiga erfitt..öðrum gengur vel..það er allskyns misrétti og ranglæti í gangi sem gengur yfir alla á einn hátt eða annan á þessari jörð.
það sem allt of fáir gera sér grein fyrir..er að það er annar heimur sem sem hægt er að vera hluti af..guðsríkið..
það er ekki af þessum heimi en hægt að lifa þar í anda sínum..draga þaðan styrk..líf og allt annað sem við þörfnumst..
það er jesús kristur sem opnar okkur leið inn í þetta ríki..hann er brúin á milli guðs og manns..sumir trúa þessu ekki..aðrir hafa tekið á móti því..
ég hef nýverið talað við ýmsa um hvort tilvera guðs sé raunveruleg sem skapari alls eða hvort við höfum orðið til vegna ópersónulegs mikla hvells og hvort sé nú líklegra?
þegar þú horfir á samræmið í náttúrunni..gerir þér grein fyrir því að þú hefur persónuleika..tilfinningar..hæfileika..val og svo margt annað..er ekki líklegra að einhver með þessa eiginleika sé höfundur þessa magnaða heims og fólksins í honum?
guð skapaði mennina til andlegs samfélags við sig..maðurinn valdi sína eigin leið og lenti í tómu tjóni..bað guð um lögmál til að halda og sór að hann gæti allsendis haldið það alla leið..svo fór ekki og þeir kölluðu yfir sig dauðadóm með synd og illindum og alls kyns klúðri..eigingirni..sjálfselsku og öðru þvílíku og þau brutu boðorðin sem þau sjálf báðu um..
til að gera fólki grein fyrir alvarleika syndarinnar og setja upp viðurlög við henni svo hún færi ekki úr böndum..var fólki gert að slátra lambi fyrir syndir sínar..einhver varð að deyja fyrir misgerðir fólksins..svo alvarlegum augum leit guð á syndina..því syndin lamar og eyðileggur..
guð sá að þetta gekk ekki..og ákvað að binda endi á þetta..hann nefnilega elskar okkur sköpun sína svo óendanlega mikið..hann sendi son sinn Jesúm Krist til að verða "síðasta" lambið..og var..slátrað á krossi fyrir allt mannkynið..í eitt skipti fyrir öll!
Jesús tók á sig alla synd og misgjörð..hann sem alltaf hafði lifaði í samfélagi við guð föður upplifði okkar vegna aðskilnað frá honum í okkar stað..en reis upp frá dauðum sem sigurvegari og er nú meðalgangarinn milli okkar og guðs..
guð hefur því sætt okkur við sig að fullu og hann hefur gert nýjan sáttmála..sem er lausn undan synd og plágum..gamli sáttmálinn er búinn..jesús uppfyllti hann..
þessi nýi sáttmáli eru ekki 10 boðorð..heldur tvö: "þú skalt elska drottinn guð og náungann eins og sjálfan þig..en það eru allt of fáir sem vita þetta..skilja og/eða taka við því..en ef við lifum eftir þeim þá fara góðu hlutirnir að gerast í kringum okkur..kærleikur..sátt..samlyndi..nægjusemi osf..
við höfum þó öll val..guð þröngvar sér ekki inn í líf nokkurs manns og mun aldrei gera..hann gaf okkur frjálsan vilja frá byrjun og mun aldrei breyta því..þess vegna er ekkert hægt að kenna honum um allt sem miður fer eins og svo margir vilja gera..við erum ekki strengjabrúður..né er Guð með töfrasprota á lofti um leið og eitthvað fer úrskeiðis hjá mannkyninu..það velur sínar leiðir..
við erum í þessum heimi..þar sem ýmislegt gott og ýmislegt miður gerist..og hefur áhrif á okkur öll sem lifa í honum..
en þeir sem taka á móti verki jesú krists..verða hluti af öðrum heimi..hinum andlega heimi guðs..guðsríkinu!
guð gaf son sinn..en við þurfum að taka á móti honum og það er hann sem leiðir okkur inn í ríki föður síns..
verði þinn vilji..á jörðu sem á himni segir í faðir vorinu..
þegar við sem lifum í andlegu samfélagi við guð og guðsríkið starfar innra með okkur þá getur ýmslegt gerst sem ekki er mögulegt "í þessum heimi"..t.d.kraftaverk..andlegt innsæi en fyrst og fremst kærleikur sem kemur beint frá hjarta guðs..og hans er svo sannarlega þörf í dag.
við mennirnir kunnum ekki að elska eins og guð..og eigum auðvelt með að verða pirruð og leiðinleg, jafnvel hata..þess vegna kannski höldum við að guð sé pirraður við okkur eins og við verðum pirruð við hvert annað..
nei..guð er bara kærleikur..og til hans getum við sótt sannan kærleika..frið..rósemi og gott vit..
mozaik kirkjan kennir fólki boðskap biblíunnar..orð guðs..þar er í gangi biblíuskóli sem umbreytir lífi fólks..og á samkomum fáum við að upplifa guðsríkið..kærleikann til guðs..fólks og lífsins..við viljum enga fjötra eða..höft..aðeins frelsi og samfélag á milli fólks sem hjálpar hvert öðru að vaxa í þekkingu á guði og hans ríki..og hvernig þetta virkar allt saman..
sunnudagar eru frábærir til að koma saman til kirkju sem fjölskylda eða einstaklingar..þar er kröftug tónlilst...frábært guðs orð flutt og barnastarf sem uppbyggir börnin og kennir þeim um guðsríkið.
verið velkomin í stangarhyl 7..kl. 14 hvern sunnudag í vetur..og komdu bara eins og þú ert..