hvað er mozaik?
velkomin


Kannski er Mozaik fyrir þig, komdu eins og þú ert. - Elska Guð, elska lífið, elska fólk.

Mozaik er ætluð fólki á öllum aldri og af öllum gerðum. Öll eigum við það sameiginlegt að vera börn Guðs og þarfnast kærleika, fyrirgefningar, viðurkenningar og nærveru Hans. Allt þetta hefur Guð Faðir þegar veitt okkur og er það þrá
Mozaik að allir fái að upplifa það.

Það sem einkennir Mozaik er einlæg þrá eftir því að þekkja Guð Föður og dvelja í kærleika hans til okkar. Kristin trú er ekki trúarbrögð, heldur samfélag við lifandi Föður, sem elskar og vill blessa allt okkar líf.

Þú getur líka fengið að reyna þennan kærleika Föðurins, kraft og lækningu Guðs í líf þitt. Við hjá Mozaik viljum hjálpa þér að uppgötva stórkostlegasta leyndardóm sem í boði er fyrir líf okkar. Við bjóðum upp á samkomur, námskeið, ráðgjöf,
nærsamfélag í litlum hópum og margt fleira.


nafnið


Mozaikmynd er gerð úr mörgum og oft á tíðum marglitum steinflísum og er altaristaflan í Skálholtskirkju gott dæmi um slíka list hér á landi. Engin ein flís getur myndað heildarmyndina, en settar saman á réttan hátt, birta þær
þá mynd sem listamaðurinn hafði í huga.

Guð hefur ákveðna mynd í huga þegar hann setur kirkju sína á laggirnar, hann vill að kirkjan opinberi og sýni Krist í allri hans dýrð. Enginn einn einstaklingur getur sýnt Krist á þennan hátt, en þegar ólíkt fólk með ólíkan bakgrunn kemur saman og leyfir Guði að gera myndina, þá birtist verkið fullklárað einn daginn.


staðsetning


Kirkjan er til húsa að Stangarhyl 7 í Reykjavík.

Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is