MBS Biblíuskóli er nú að hefja sitt þriðja starfsár. Það eru margir sem vilja fræðast um Biblíuna og þá sérstaklega boðskap Nýja Testamentisins. Til að auka enn á möguleika fólks til að fræðast, þá mun MBS breyta aðeins til þetta árið, stytta námstímann og bjóða upp á tvö námskeið í vetur. Fyrra námskeiðið stendur frá sept-des 2011 og það síðara jan-apr. 2012. - Hægt er að skrá sig á annað eða bæði.
Langar þig að læra, þroskast og þjálfast í trúni og framganga í nýjum krafti? Áttu erfitt með að fara í heilsdagsskóla? Áttu erfitt með að taka vinnufrí og flytjast búferlum í lengri eða skemmri tíma til að sækja skóla? Ef svar þitt er játandi við þessum spurningum, þá er MBS fyrir þig. Þú færð góðan grunn og innsæi í fagnaðarerindi náðarinnar og tækifæri til að upplifa og lifa í krafti þess.
Nám í MBS getur gjörbreytt lífi þínu. MBS er ekki bara venjulegur biblíuskóli. Biblían talar um að fá að skyggnast inn í leyndardóma Guðs og öðlast fullkomið frelsi. Jesús sagði að þeir sem þekktu sannleikann yrðu frjálsir. Þótt kennslan sé eins og hún gerist best, þá mun MBS ekki einungis fræða þig, heldur líka hjálpa þér að losna úr viðjum lögmáls og fordæmingar, svo þú megir sannarlega finna frelsi. Kraftur til lífs og starfa leysist úr læðingi við að ganga inn í þetta frelsi og yfirnáttúrulegur kraftur Guðs fær farveg í þínu lífi.
Kennarar MBS eru bæði innlendir og erlendir, reynslumiklir í þjónustu og starfi. Þeir kenna með opinberun og framganga sterklega í hinum ýmsu gjöfum Andans. Miðlægt í allri kennslu er fullkomið verk Krists, náðin, nýi sáttmálinn, nýja sköpunin og brúður Krists.
Kennt er í húsnæði Mozaik - Stangarhyl 7, 110 Reykjavík
Skólasetning er fimmtudaginn 22. september 2011 kl. 17:30
Kennt er alla fimmtudaga frá 17:30-19:30.
Umsækjandi skal hafa náð 18 ára aldri og amk. hafa lokið grunnskóla eða samsvarandi námi. Þá skal umsækjandi samþykkja og virða aðferðafræði og gildi skólans.
Skólagjöld kr. 50.000 pr. námskeið.
Umsóknarfrestur haust:
Hægt er að sækja um nám við skólann allt fram til 10.september 2011. Umsóknarfrestur vor:
Hægt er að sækja um nám við skólann allt fram til 05. janúar 2012
Sendið nafn, kennitölu, heimilsfang og símanúmer á hnl@simnet.is eða hringið í síma 8973646
Hlakka til að sjá þig í MBS Halldór Lárusson, rektor Mozaik Biblíuskóla