Veturinn 2011 - DNA uppbygging
17:48 | 5.9.2011
Nú er veturinn framundan og hjá Mozaik verður það vetur afar spennandi hluta. Til að byrja með munum við leggja enn ríkari áherslu á samskipti og samfélag manna á milli. Biblían talar mjög mikið um kirkjuna sem fjölskyldu og sterka einingu þar sem gagnkvæmur kærleikur og virðing blómstrar. 

Smærri hópar sem hittast reglulega, oft kallaðir heimahópar af því þeir hittast gjarnan á heimilum fólks, eru til í mörgum kirkjum hér á landi sem annars staðar. Þessir hópar, þ.e. þetta samfélag fólks er í raun eðli og kjarni kirkjunnar ef litið er til frumkirkjunnar og því sem Kristur hefur kallað okkur til. 

Í Mozaik viljum við temja okkur þessa hugsun um kirkjuna, en oft er erfitt að losna við samkomu miðaðan kristindóminn sem gjarnan á huga okkar. Við ætlum því að leggja samkomurnar á hilluna í vetur, a.m.k. um einhvern tíma og einbeita okkur að því að byggja upp vinasamfélag.

Gríska heitið fyrir kirkju er ecclesia, sem merkir samansafn fólks, eða samfélag fólks og vegna þessa eðlis kirkjunnar þá eru hópar Mozaik í raun DNA kirkjunnar okkar. 

Við byrjum á einum hópi og dreifumst svo í fleiri hópa víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Fyrsti hittingur verður fimmtudaginn 8.sept. kl.20:00 í Bjarkarási 15 Garðabæ.

Hóparnir munu fræðast, biðja, borða og leika sér, en umfram allt tengjast vináttuböndum þar sem Kristur fær að myndast á meðal okkar. - Hóparnir eru að sjálfsögðu öllum opnir...og allir koma eins og þeir eru...enginn þarf að breyta sér til að fá að vera með.

Við elskum Guð, elskum fólk og elskum lífið !
  
Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is