bænarefni
* Viljið  þið biðja fyrir bróður mínum sem er að glíma við soriasis. (sent inn 8. janúar 2009)

* Vinsamlegast biðið fyrir því að ég fái húsnæði leigt sem allra fyrst. Ég er á götunni eftir 1. október og þarf virkilega á hjálp að halda við að biðja fyrir gegnumbroti inní þessar kringumstæður. (sent inn 17. sept 2008)

* Viljið þið biðja fyrir konu á fimmtugsaldri sem var að missa vinnuna, að Guð gefi henni vinnu við hæfi.  Konan sefur ekki vel og biður líka um að biðja fyrir góðum svefni og hvíld (sent inn þann 29. ágúst 2008)

* Viljið þið biðja fyrir 3ja ára barni sem er að missa heyrnina, mælist með mjög litla heyrn og á að fara í heila skanna til frekari rannsóknar. Biðjum um lækningu og góðar niðurstöður úr rannsókninni. (sent inn 28. ágúst 2008)

* Viljið þið biðja fyrir vinkonu minni og fjölskyldunni hennar að Guð mæti þeim á sinn einstaka hátt. Hún á fimm börn ,þar af eru fjögur alcoholistar. Hún trúir á bænina, en nær ekki að gefast Guði af heilu hjartan. Ég vil líka þakka Guði fyrir það sem ahnn er að gera fyrir mig og fjölskydlduna mína! (sent inn 25. ágúst 2008)

* Viljið þið biðja fyrir ungum fjölskylduföður sem er með lungabólgu. Biðja líka fyrir slitgigt sem hrjáir hann. (sent inn 25. ágúst 2008)

*Ég óska eftir fyrirbænum fyrir hana ömmu mína sem er með mikla verki vegna
þrenginga í mænu. Hún er orðin gömul og lúin og ég bið fyrir því að hennar
þjáningar hverfi og að hún fái lækningu á sínum meinum (sent inn 23. ágúst 2008)


* Má ég biðja ykkur um að biðja fyrir manni á miðjum aldri sem er í krabbameinsmeðferð.  Hann glímir við krabbamein í hálsi sem líklega er einnig komið í eitla.  Biðjið Guð um fullkomna lækningu honum til handa (sent inn 5. ágúst 2008)

*Viljið þið biðja fyrir karlmanni með laskaða hryggjarliði.  Hann er almennt góður í bakinu ef hann hlífir því en eitthvað gaf sig nú um helgina þannig að hann hefur miklar kvalir í bakinu.  Biðja Guð að gefa fullkomna lækningu á þessu baki (sent inn 5. ágúst 2008)

* Viljið þið biðjið fyrir fjölskyldunni minni ,að hún verði sú sterka keðja sameiningar sem hún var og  sem Guð ætlar henni að vera (sent inn 29. júlí 2008)

*  Viljið þið biðja fyrir barnabarninu mínu sem er 3 mánaða gamalt. Hún grætur mikið og þjáist af einhverskonar magakveisu. Hún ælir líka mjög mikið. (sent inn 3. júlí 2008)  

* Viljið þið biðja fyrir ungri konu sem var að greinast með krabbamein. Hún þarf að fara í aðgerð en fyrst fer hún í lyfjameðferð. Hún þarf að vera frá vinnu í eitt ár. Hún er staðráðin í að vinna þessa baráttu með Guðs hjálp!! (Sent inn 28. júní 2008)

* Viljið þið biðja fyrir ungri móður sem er alvarlega veik og er að fara í aðgerð í dag. Biðjum Guð um fullkomið gegnumbrot inní heilsu hennar. (sent inn 18. júní 2008)

* Viljið þið biðja fyrir 20 ára manni sem er með ólæknandi og hættulegan sjúkdóm í ristli. Hann er mjög kvalinn (sent inn 9. júní 2008)

* Vinsamlegast biðjið fyrir ungri fjölskyldu sem er í miklum fjárhagserfiðleikum (sent inn 5. júní 2008)

* Viljið þið biðja fyrir alka sem þráir að lifa og verða edrú. En þarf mikinn styrk til að það megi verða. (sent inn 4. júní 2008)

* Vljið þið biðja fyrir öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna jarðskjálftanna í síðustu viku. (sent inn 2. júní 2008)

* Bið ykkur um að biðja fyrir Óskýrðri Agnarsdóttur sem fæddist fyrir tveim dögum. Hún er nú í öndunarvél og berst fyrir lífi sínu. Biðja fyrir algjörri lækningu Guðs í líf hennar. Einnig fyrir fjölskyldu hennar, að veita henni stuðning og styrk á þessum erfiðu óvissu tímum (sent inn 31. mai 2008)

*Viljið þið biðja fyrir vini mínum sem var að greinast með krabbamein í þriðja sinn og nú, næsta miðvikudag á að fjarlæga magann úr honum. Við vitum að Guði er ekkert um megn og því bið ég ykkur um að sameinast í bæn fyrir þessum góða dreng. (sent inn 29. maí 2008)

* Biðja fyrir hjónum í fjárhagslegum erfiðleikum. Að Guð leysi það mál og geri þau samtaka. (sent inn 29. maí 2008)

* viljið þið biðja fyrir 27 ára gömlum manni sem er að berjast við alkahólisma (sent inn 27. mai 2008)

* Vinsamlegast biðjið fyrir 15 ára stúlku sem á  við mikla erfiðleika að stríða. Biðjið fyrir því að úrlausn finnist fyrir henni og fjölskyldu hennar. (sent inn 26. maí 2008)

* Kona sem er nýlega hætt að reykja biður um fyrirbæn að það megi ganga vel hjá henni. (sent inn 26. maí 2008)

* Kona biður okkur að biðja fyrir ömmu sinni sem er með mikla hjartaverki. (sent inn 22. maí 2008)

* Biðja fyrir hjónum að Guð mæti þeim fjárhagslega en þau sjá enga leið út úr skuldum. Biðja einnig um andlega vakningu hjá þeim. (sent 22. mai 2008)

* Biðja fyrir manni sem fer fyrir andkristilegum samtökum. Hann er að fara spila kristileg lög með frelsuðum einstaklingum, Biðja Guð að senrta við honu. (sent 22. mai 2008)

* Biðja fyrir konu sem er föst í greipum eiturlyfja (Sent 21. mai 2008)

* Viljið þið biðja fyrir ungum dreng sem á erfitt með að fóta sig í lífinu. Biðja líka fyrir foreldrum hans sem eru orðnir langþreyttir á ástandinu. (sent 20. maí 2008)

* Ég vil endilega leggja fram frænku mína sem er barnshafandi, komin 8 mánuði á leið. Eða réttara sagt leggja fram ófædda barnið hennar. Hún var í skoðun í dag og þá kom í ljós að barnið er með 5 cm stórt æxli hjá nýranu eða þar í kring. Þetta leggst þungt í móðurina og ekki er vitað um framhaldið. Biðjum bara fyrir því að Guð mæti inn í þeirra kringumstæður og geri litla barnið alheilbrigt (sent 14. maí 2008)

* Biðja Guð að lækna ungan dreng sem er með krabbamein í höfði (sent 12. maí 2008)

* Biðja fyrir fjölskylduföður sem er í tilvistarkreppu og vill yfirgefa fjölskyldu sína. Að hann komi til baka til trúarinnar og þeirrar lausnar sem þar er að finna. Að börnin og eiginkonan fái styrk til að gera áframhaldandi sitt besta í erfiðum aðstæðum (sent 11. maí 2008)

* Vinsamlegast biðjið fyrir ungum manni sem er fastur í fíkniefnum (sent 10. maí 2008)

* viljið þið biðja fyrir konu sem er að fara í aðgerð (sent 10. maí 2008)

* Biðja fyrir manni hefur verið mjög veikur eftir aðgerð á nýra og er á sjúkrahúsi, og biðja einnig fyrir konunni hans hún er í rannsóknum hendurnar eru svo bólgnar að hún er óvinnufær (er hárgreiðslukona) (sent 10. maí 2008)

* vinsamlegast biðjið fyrir konu sem er að ganga í gegnum mjög erfiðan tíma (sent 9. maí 2008)

* Viljið þið biðja fyrir barnmargri fjölskyldu sem á í fjárhagserfiðleikum (sent 9. maí 2008)

* Mig langar til að við sameinumst um að biðja fyrir skólasystur minni sem er að berjast við brjóstakrabbamein. Að Guð lækni hana algjörlega og að hún fái að kynnast upprisukrafti Jesú (sent 8. maí 2008)

* Vinsamlegast biðjið fyrir vini mínum sem er að berjast við krabbamein (sent 8. maí 2008)


Mózaik Hvítasunnukirkja - Stangarhylur 7, 110 Reykjavík - mozaik@mozaik.is